|
Minningarljóð frá Hrafndísi |
|
Skrifað af Tjörvi
|
|
Monday, 18 June 2007 |
|
Í gegnum gestabókina barst þetta fallega minningarljóð um föður minn frá henni Hrafndísi frænku minni. | | |
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Tjörvi
|
|
Wednesday, 06 June 2007 |
|
Hrafnkell A. Jónsson verður jarðsettur í Egilsstaðarkirkju föstudaginn 8.júní, klukkan 14:00. Erfidrykkja verður í Menntaskólanum á Egilsstöðum ( Hótel Eddu ) að athöfn lokinni. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök sjúkrahússins á Egilsstöðum. | | |
|
Síðast uppfært ( Wednesday, 06 June 2007 )
|
|
|
Skrifað af Tjörvi
|
|
Wednesday, 06 June 2007 |
|
Hrafnkell A. Jónsson er látinn, hann lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum síðastliðið þriðjudagskvöld, 59 ára að aldri. Hrafnkell var fæddur á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal og ólst upp í Klausturseli á Jökuldal. | | |
|
Síðast uppfært ( Monday, 18 June 2007 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Tjörvi Hrafnkelsson
|
|
Tuesday, 20 March 2007 |
|
Pabbi bað mig um að setja nokkur orð hérna á síðuna hjá sér. Eins og fólk hefur séð hefur pabbi verið að glíma við erfið veikindi. Í byrjun árs fékk hann hins góðar niðurstöður úr tékki, þar sem niðurstaðan var sú að engar sannanir væru fyrir framgöngu krabbans í hausnum. Það ríkti því mikil bjartsýni um að nú lægi allt upp á við. | | |
|
Síðast uppfært ( Tuesday, 20 March 2007 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Hrafnkell Jónsson
|
|
Monday, 26 February 2007 |
|
Faðir allra krata Nú er framundan ein suðurferðin. Að morgni 7. mars fljúgum við Fjóla líklega verða þær nöfnur með, suður, þá um morguninn mæti ég svo í segulómun. Mér er ekkert sérlega rótt en hef þó enga ástæðu til að búast við slæmri skoðun. Mér ge ngur held ég bara nokkuð vel í endurhæfingunni. Sjónin er svo sem alltaf að plaga mig hvort sem það er merki þess að maddama Krabb sé að hrekkja mig. Ég held að það sé ekki ástæðan. Ég fæ alltaf góða gesti í heimsókn. Og sé hverjir eru vinir í raun. Það er athyglisv ert. Mér þykir sérlega vænt um hvað Eskfirðingar hafa verið ræktarlegir við okkur. Hafi þeir sem haft hafa tíma til að sinna vesaling mínum heila þökk. Íslenskir fjölmiðlar geðu stólpagrín að Turkmenum fyrir dýrkun þeirra á forseta landsins sem sofnaði til feðra sinna fyrir skömmu. Sá heiðursmaður lét kalla sig föður allra Turkmena, síðan var það sem hann lét frá sér fara skyldulesning.En trúlega er rétt að hætta að gera grín að Turkmenum. Frelsari er fæddur hann kom fram í Hafnarfirði og heitir Jón Baldvin. Þeir sem nutu þess fagnaðar að heyra predikun hans um atvinnumál í Hafnarirði vilja að fagnaðarerindið verði sent á hvert heimili og verði þar væntanlega skyldu lesning. Hver verður framtíð hins vinnandi mans á Íslandi. Þegar komnir verða tl valda menn sem skilja ekki þörf almennings til vinnu. Ísland er auðugt að náttúrugæðum. Það getur fóstrað þjóðina þannig að engir þurfa að líða skort. Ég vona að Sjálfstæðisflokkurinn breyti umstefnu því hörð markaðshyggja leiðir til ójafnaðar. Ég treysti þó Sjálfstæðisflokknum einum til að framkvæma jöfnuð af réttlæti. Ég hef í legunni horft mikið á umræður af þingi og orðið fróðari um þá sem þar véla um. Eftir að hafa metið Steingrím J. Sigfússon mikils sem stjórnmálamann, varð mér það á að heyra hann fjalla um atvinnuuppbyggingu á Íslandi. Þar tók hann fyrir áform Húsvíkinga, Hafnfirðinga,Reyknesinga og Þorlákshanarbúa um uppbyggingu orkufreks iðnar. Steingrímur skaut allar þessar hugmyndir út af borðinu, en komu þá ekki nýjar og ferskar hugmyndir. Ekki man ég eftir einni einustu. Mun þessi maður stjórna atvinnumálum íslendinga næstu árin. Hann mun þar njóta hins ráða góða Jóns Baldvins föður allra krata. | | |
|
|
Er sturlungaöld í vændum? |
|
Skrifað af Hrafnkell Jónsson
|
|
Monday, 19 February 2007 |
|
Mun Baldur Freysgoði verjast? Ég hef látið kyrrt með blogg upp á síðkastið. Við svo búið má ekki sitja. Síðustu vikur hafa verið allgóðar. Ég er búinn að vera í þjálfun hjá Sverri og ég held mér fari fram, þótt enn sé ég skratti valtur. Ég treysti mér ekki einn með hækjuna en það kemur. Þá er ég reglulega í Iðjuþjálfun hjá Eygló Daníelsdóttur. Ég er kominn með góðan styrk í hendurna.r. Hvað framtðín ber í skauti er erfitt að segja. Ég er bjartsýnn en reyni líka að vera raunsær. Þá er það pólókin. Fralslindir hafa sýnt á spðilin og eru með fósa á hendi. Sigurjón Þórðarso, þingmann og Hegranesgoða. Sigurjón þekki ég ekki nema af skrifum hans og ræðum. Ekki get ég sagt að þau kynni gefi þá mynd að af honum sé sérstök hýbýlaprýði. Mér hefur þótt hann meinyrtur og illorður um einstaka andstæðinga sýna. Það er hins vegar ósanngjarnt að láta slíkt ráða alfarið mati á manninum. Það hefur gerst áður að Ásbirningar berðust til valda á Austurlandi. Yfirleitt voru Ásbirningar hinir verstu ribbaldar og yfirgangssamir. Mér segir hugur um að Sigurjón Hegranesgoði verði enginn friðflyjandi. Það kynni samt að sitja í mönnum yfirgengilegur málflutningur hans í garð Halldórs Ásgrímssonar. Austfirðingar hafa borið mikla virðingu fyrir Halldóri og hafa virt fjölskyldu hans að verðleikum. Sigurjón væri maður að meiri ef hann bæðist afsökunar á gífuryrðum sínum um Halldór.Ég óska Sigurjóni farsældar. Ég mun ekki kjósa hann, en tel Austurland eigi að taka með fögnuði með hverjum nýjum liðsmanni | | |
|
Síðast uppfært ( Monday, 19 February 2007 )
|
|
|
Ómar á þing??????????????????????????????????? |
|
Skrifað af Hrafnkell Jónsson
|
|
Friday, 09 February 2007 |
|
Ómar á þing??????????????????????????????????????? Ég fór í huggulegan spássertúr með Sverri sjúkraþjálfara í gær. Það nálgast að ég geti fatið í sjúkraþjálfun. ÞAÐ VERÐUR Áfangi. Ég benti doktorum mínum á að eftir að hjartaáfallið greindist að nú væri bara eftir að greina mig með fuglaflensu. Þeir tóku svona ábyrgðarlausu tali vel.Ég hitti lækni í gær, hann gaf mér góðar vonir. Ég sef betur og sé ekki manninn með ljáinn í hverjum skugga.Það er ýmislegt að gerast í pólitíkinni. Mér þykir þeir brattir þeir frjálslindu að fórna Margtréti Sverrisdóttur fyrir karlgerpi eins og Magnús Þór. Ég var að hlusta á Ómar Ragnarsson eftir fund Framtíðarlandsins. Líklega hefði Sjálfstæðisflokkurinn átt að bjóða Ómari öruggt þingsæti. Umhverfismál verða mál málanna næstu árin. Þekking Ómars á þeim málum er óumdeilanleg. Við eigum að velja hæfasta fólkið til þingsetu. Það getur líka farið út af sporinu, það gerði Ómar í baráttu sinni gegn Kárahnjúkum. Þekking hans áumhverfismálum er ekki minni fyrir það. Ég datt á höfuðið um daginn ogs lósvohausnum við stein í gær. Því þrátt fyrir þekkingu Ómars á umhverfismálum verður ekki komist hjá því að hann er stækt afturhald þegar kemur að nýtingu orkunnar. Það væri af þeim sökum nær að tala um Steinaldarfólkiðn í stað þess að tala um Framtíðarlandið. | | |
|
Síðast uppfært ( Friday, 09 February 2007 )
|
|
|
Það er ekki öll vitleysan eins. |
|
Skrifað af Administrator
|
|
Saturday, 03 February 2007 |
|
Það er reyndar merkisdagur í dag. 3.febrúar. Gærdagurinn var annars dálítið merkilegur líka, þá áskotnaðist mér nýr sjúkdómur. Þögult hjartaáfall. Ég er ekki að spauga. Þeir fundu þetta norðfingarnir. Þá hef ég fengið aðsif, krabba við heila, blóðtappa og ég gleymi sjálfsagt einhverju. Þessi síðasti sjúkdómur er fúll því ég verð algeru hreyfingarrleysi, má ekki fara heim. En þetta er eitthvaðsem ég skil ekki. Til að finna þessa kvilla er ég búinn að fara tvisvar í myndatöku á Akureyri, tvisvar á Norðfjörð, tvisvar með sjúkraflugi Egilsstaðir/Reykjavík og einu sinni í áætlunarflugi. Ég kvarta ekki undan því að ferðast með Steina frænda mínum. Hjálpsamari mann er ekki hægt að hugsa sér. Það sama gildir um allt starfsfólkið á Egilsstöðum eins er á öllum þeim heilbrigðisstofnunum sem ég hef gist. Ég velti því samt fyrir mér hvort ekki mætti treysta starfsfólkinu á Egilsstöðum fyrir myndavél. Það kostar að hafa sjúkrabíl á rúntinum. | | |
|
Síðast uppfært ( Saturday, 03 February 2007 )
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 34 |